Velferðarmál

Reykjanesbær getur orðið leiðandi sveitarfélag þegar kemur að sjálfbærni og umhverfisvænum lausnum. Við viljum stuðla að Í Reykjanesbæ eiga íbúar að búa við félagslegt öryggi og góð uppeldisskilyrði barna og ungmenna. Við leggjum áherslu á forvarnir og eflingu einstaklinga til framtíðar. Góð andleg og líkamleg heilsa, tækifæri til virkni, þroska og lífsgleði skiptir sköpum fyrir okkur öll. Þjónustuna á að skipuleggja og veita í góðu samstarfi við þá sem hana þiggja og aðra sem veita þjónustu á sviði velferðarmála. Þá á sveitarfélagið að vera í forystu hvað varðar rafrænt aðgengi að þjónustunni og setja skýr markmið um árangur.

Við boðum breytingar í velferðarþjónustu

  • Aukum áherslu á úrræði  sem auka getu til sjálfsbjargar og lífsgæði til frambúðar
    • Styðjum vel við fólk sem þarfnast aðstoðar með það að markmiði að gera þörfina minni
    • Gerum þjónustuna skilvirkari og auðveldum fólki þátttöku og/eða endurkomu á vinnumarkaðinn í samstarfi við fagaðila.
  • Eflum búsetu úrræði fyrir börn og fullorðna með sérþarfir
  • Styðjum við og eflum starfsfólk í velferðarþjónustu
  • Tryggjum að þjónustustig sé í samræmi við uppbyggingu og stækkun bæjarins ásamt fólksfjölgun.

Við boðum breytingar í geðheilbrigðismálum

  • Setjum geðheilbrigðismál á oddinn og gerum þau sýnileg
  • Aukum til muna aðgengi að geðheilbrigðisþjónustu í grunn- og framhaldsskólum Reykjanesbæjar.
  • Förum í sérstakt átak í geðrækt á unglingastigi grunnskóla.
  • Styttum biðtíma fyrir greiningar á börnum og unglingum.
  • Bjóðum upp á fjölbreyttari úrræði í skólum. Nýtum stefnuna um að fé fylgi barni. Það þýðir að börn og unglingar hafi val þegar kemur að geðrækt. T.d.
    • Sjálfstyrkingarnámskeið
    • Sálfræðiþjónusta
    • Annað stuðningskerfi
  • Setjum upp fjölbreytt úrræði í geðheilbrigðisþjónustu þar sem ein lausn hentar ekki öllum
  • Aukum forvarnarstarf, fræðslustarf um geðheilsu og nýtum betur þekkingu fagfólks hér á svæðinu
  • Hugum vel að fólki af erlendum uppruna og að aðgengi og sýnileiki geðheilbrigðisþjónustunnar sé á fleiri en einu tungumáli. 
  • Innleiðum rafræna sérfræðiþjónustu, lækna og sálfræðinga til viðbótar við staðbundna
  • Styttum biðtíma eftir sálfræðiþjónustu
  • Leggjum áherslu á samkennd, jákvæð og uppbyggileg samskipti í samfélaginu

Við boðum breytingar í forvarnarstarfi og stuðningi við fjölskyldur 

  • Hefjum stórsókn í forvarnarstarfi. Reykjanesbær verður leiðandi þegar kemur að forvarnarstarfi foreldra, barna- og unglinga. Forvarnarstarf er mikilvægt í öllum aldurshópum og til þess þarf að horfa í öllu starfi Reykjanesbæjar. 
  • Vinnum náið með hinum ýmsu félaga- og hjálparsamtökum m.a. ; 
    • Píeta 
    • Kvennaathvarfið 
    • Bjarkarhlíð 
    • Samtökin 78
  • Bjóðum upp á fjölbreyttari fræðslu og úrræði fyrir börn með sérþarfir innan skólakerfisins
  • Aukum við stuðning foreldra barna- og unglinga sem eiga erfitt uppdráttar í skólakerfinu og hugum að líðan þeirra
  • Styðjum fólk til árangurs á vinnumarkaði – sérstaklega fólk með sérþarfir.