Rekstur sveitarfélaga er ekkert frábrugðinn rekstri fyrirtækja hvað varðar kröfu um hagkvæmni og ábyrgð stjórnenda. Stöðug rýni til gagns og skoðun á því hvernig okkur er að ganga er sjálfsögð krafa í umhverfi stöðugra breytinga og þróunar. Við eigum að vera óhrædd við að gera breytingar á þjónustunni og forgangsraða í takti við þarfir íbúa hverju sinni. Þá eigum við að vera öflugur málsvari bæjarins gagnvart ríkinu og krefjast sambærilegra framlaga til þjónustu á forræði ríkisins og veitt eru sambærilegum sveitarfélögum. Við ráðstöfun á fjármagni sveitarfélagsins þarf að bera virðingu fyrir því að verið sé að ráðstafa fjármunum bæjarbúa.
Við boðum breytingar í stjórnsýslunni
- Gerum skýra kröfu um hagkvæman rekstur þar sem sjálfsagt þykir að spyrja reglulega hvort gera megi betur
- Komum á og eigum reglulega samráðsfundi með íbúum allra hverfa
- Styðjum við stjórnendur sveitarfélagsins og aukum ábyrgð þeirra á að árangur náist
- Rýnum stöðugt hvar er hægt að gera betur og með hagkvæmari hætti
- Lítum til fjölgunar stöðugilda með gagnrýnum hætti, skilgreinum skýr markmið með hverri nýrri stöðu og skýrt hlutverk sem tengja má aukinni þjónustuþörf íbúa.
- Tryggjum gagnsæi í stjórnsýslunni m.a. með auknu aðgengi að rafrænum upplýsingum um stöðu mála og erinda.
- Einföldum og samræmum stafrænar þjónustuleiðir Reykjanesbæjar
Við boðum breytingar í fjármálastjórnun
- Vinnum ötullega að því að auka tekjur í takti við önnur sveitarfélög, án hækkunar skatta
- Lækkum fasteignaskatta og skoðum breytingar á lóðaleigu
- Vöndum vinnu við fjárhagsáætlun þannig að hún endurspegli í raun þau verkefni sem ráðast þarf í á tímabilinu en kalli ekki á augljós aukaframlög.
- Stýrum af festu verklegum framkvæmdum og leggjum áherslu á góðan undirbúning áður en hafist er handa.
Við boðum breytingar í samskiptum við ríkið
- Beitum okkur fyrir því að ríkisfyrirtæki hafi höfuðstöðvar sínar í Reykjanesbæ
- Vinnum að því að byggð verði ný lögreglustöð í Reykjanesbæ
- Tryggjum nægjanlegt fjármagn til stofnana ríkisins í sveitarfélaginu
- Semjum við ríkið um lóðaleigu á Ásbrú
Við boðum breytingar í heilbrigðisþjónustu
- Fáum einkarekna heilsugæslu til Reykjanesbæjar
- Stöndum með HSS í að berjast fyrir að sambærilegt fjármagn renni til HSS og annarra heilbrigðisstofnana
- Öxlum ábyrgð og tölum máli íbúa sveitarfélagsins gagnvart ríkinu er varðar heilbrigðisþjónustu á svæðinu
- Vinnum með HSS í að því að efla traust til stofnunarinnar
- Aukum samstarf á milli stjórnenda Reykjanesbæjar og HSS
- Beitum okkur fyrir því að sem víðtækust heilbrigðisþjónusta sé í boði innan sveitarfélagsins