Skólamál

Leikskólar

Leikskólinn er fyrsta skólastigið hlúa þarf að faglegu starfi með því að samræma menntun, uppeldi og umönnun leikskólabarna til að tryggja jafnrétti allra barna til menntunar og uppeldis. Við leggjum áherslu á að foreldrar barna geti farið á vinnumarkaðinn að fæðingarorlofi loknu án þess að þurfa að kvíða dagvistunar úrræðum. 

Við boðum breytingar í leikskólamálum

  • Tryggjum börnum frá 18 mánaða aldri leikskólapláss
  • Tryggjum fjölbreytt úrræði fyrir börn 12-18 mánaða, opnum ungbarnadeildir eða skóla og styrkjum dagforeldrakerfið
  • Drögum úr álagi starfsfólks leikskólanna með markvissum og faglegum stuðningi
  • Styrkjum faglegt starf, fátt sem skilar meiri ábata fyrir samfélagið en góðir leikskólar
  • Styðjum ófaglært starfsfólk leikskólanna til náms
  • Fjölgum leikskólakennurum með því að semja við menntastofnanir um nám sem hentar með starfi í leikskóla.
  • Mannauðsráðgjafi sem sér eingöngu um leik- og grunnskóla sveitarfélagsins og aðstoðar þannig stjórnendur í mannauðsmálum
  • Stuðlum að því að greiningum barna verði hraðað
  • Eflum stuðningsþjónustur skólanna s.s. sálfræði-, félags- og heilbrigðisþjónustu þannig að þjónustan verði öflug innan veggja skólanna

Grunnskólar

Skólaganga barna mótar lífsgæði þeirra og tækifæri til framtíðar. Metnaðarfullt og faglegt starf innan grunnskóla Reykjanesbæjar á að taka mið af því. Við leggjum áherslu á að þörfum nemenda sé mætt, að tíminn sem líður frá því að stuðnings er þörf og þar til hann er veittur sé styttur, að faglegur stuðningur við starfsfólk sé aukinn og aðstaða grunnskóla samræmd. 

Við boðum breytingar í grunnskólamálum

  • Hefjum strax undirbúning að byggingu á nýjum grunnskóla á Ásbrú
  • Setjum menntun barna í Reykjanesbæ í forgang
  • Stuðlum að því að greiningu barna verði hraðað
  • Eflum stuðningsþjónustu skólanna s.s. sálfræði-, félags- og heilbrigðisþjónustu þannig að þjónustan verði öflug innan veggja skólanna
  • Skilgreinum stöðu mannauðsráðgjafa sem sér eingöngu um leik-og grunnskóla sveitarfélagsins og aðstoðar þannig stjórnendur í mannauðsmálum
  • Drögum úr álagi á starfsfólk grunnskóla með markvissum faglegum stuðningi
  • Styðjum ófaglært starfsfólk grunnskólanna til náms
  • Samræmum og eflum móttöku og aðlögun barna og foreldra af erlendum uppruna í grunnskólum í samstarfi við íþróttafélög og bæjarskrifstofur
  • Stórbætum útisvæði við grunnskóla Reykjanesbæjar og nýtum sem útivistarsvæði fjölskyldna í hverfum bæjarins