Sjálfbærni

Reykjanesbær getur orðið leiðandi sveitarfélag þegar kemur að sjálfbærni og umhverfisvænum lausnum. Við viljum stuðla að endurnýtingu og endurvinnslu á úrgangi frá heimilum og fyrirtækjum með innleiðingu hringrásarhagkerfisins að leiðarljósi. Við viljum ýta undir tækifæri til að bæta nýtingu á úrgangi til orkuframleiðslu. Við munum hvetja til meiri flokkunar á sorpi hjá heimilum og fyrirtækjum.

Við boðum breytingar í umhverfismálum

  • Gerum Reykjanesbæ að kolefnishlutlausu sveitarfélagi 
  • Fjölgum hraðhleðslustöðvum í Reykjanesbæ í samvinnu við einkaaðila þannig að Reykjanesbær verði leiðandi í orkuskiptum 
  • Vekjum áhuga íbúa og fulltrúa fyrirtækja um áhrif þeirra og möguleika til kolefnisjöfnunar. Setjum á laggirnar gróðursetningarátak á lóðum í bænum í samstarfi við íbúa, félög og fyrirtæki. 
  • Hvetjum íbúa bæjarins í umhverfismálum og til umhverfisvæns lífsstíls 
  • Fjölgum og kynnum betur flokkunarstöðvar í bænum, mælum notkun og setjum okkur skýr markmið
  • Hröðum led væðingu sveitarfélagsins
  • Ljúkum við stefnumótun varðandi fyrirkomulag sorpflokkunnar og aðlögum okkur að breyttum lögum um meðhöndlun úrgangs.