Reykjanesbær hefur stækkað ört og íbúum fjölgað til muna. Mikilvægt er að hlúa að mannlífinu og þeim þáttum sem setja mark sitt á bæinn. Öflug menningarstarfsemi, þar sem fólki gefst tækifæri til að sjá og hitta aðra og upplifa menningarviðburði saman, eflir bæjarbrag og laðar að íbúa og gesti.
Við boðum breytingar í menningarmálum
- Eflum menningartengda viðburði s.s. viðburði tengda aðventugarði, barnamenningarhátíð og 17.júní
- Eflum bókasöfnin sem menningar- og upplýsingamiðstöðvar, finnum lausn á húsnæðisvanda og styðjum við nútímavæðingu þeirra
- Opnum aftur og eflum Landnámsdýragarðinn
- Eflum styrkveitingar til menningarmála og endurskoðum úthlutun
- Veitum börnum og ungmennum tækifæri til aukinnar þátttöku í menningartengdum verkefnum
- Vekjum meiri athygli á sögu og menningu bæjarins fyrir íbúa og gesti bæjarins s.s. með stafrænum lausnum og reykjanesbæjar snjallforriti
- Bætum í markaðssetningu á menningartengdum verkefnum Reykjanesbæjar og aukum aðsókn gesta
- Aukum samtal skipuleggjenda menningarviðburða og þjónustuaðila í bænum
- Þróum öflugri miðbæjarmenningu í samstarfi við íbúa og aðra hagaðila