Öflugt frístunda- og tómstundastarf er mikilvægur liður í velferð barna og ungmenna. Mikilvægt er að tryggja fjölbreytt framboð þannig að sem flestir finni eitthvað við sitt hæfi sem eflir félagsþroska og virkni. Frístundastarf grunnskólanna þarf að samræma, tengja samgöngur við starfsemina og bæta aðgengi að félagsstarfi í hverju hverfi fyrir sig.
Við boðum breytingar í frístunda- og tómstundamálum
- Opnum félagsmiðstöðvar í hverfunum í samstarfi við grunnskólanna og Fjörheima
- Opnum aftur og eflum Landnámsdýragarðinn
- Tryggjum enn betri tómstundir fyrir börn með sérþarfir
- Skipuleggjum frístundaakstur og strætisvagnaferðir með þarfir skóla-, íþrótta- og tómstundastarfs í huga
- Eflum og samræmum frístundastarf innan grunnskólanna
- Aukum samstarf við frjáls félagasamtök og aukum þannig fjölbreytni í tómstundastarfi
- Útbúum gönguskíðaspor