Reykjanesbær á að vera aldursvænt bæjarfélag þar sem gott er að verja efri árunum. Gott aðgengi og framboð af heilbrigðis- og félagsþjónustu, fjölbreyttum búsetuúrræðum og félagsstarfi eru lykilatriði. Virkni og vellíðan eru nátengd lífsgæðum og eiga eldri íbúar ávallt að hafa gott aðgengi að fjölbreyttu og heilsueflandi félagsstarfi.
Við boðum breytingar í málefnum eldri íbúa:
- Setjum meiri kraft í félagsstarf eldri íbúa utan Nesvalla og skoðum möguleikana innan hverfa
- Veitum áfram öflugan stuðning við heilsueflingu eldri íbúa
- Flýtum uppbyggingu fleiri hjúkrunarrýma samhliða öflugri heimaþjónustu
- Komum upp nýjum búsetukosti fyrir eldri íbúa. Um væri að ræða þjónustuíbúðakjarna fyrir eldri íbúa sem þurfa aukna þjónustu við athafnir daglegs lífs án þess þó að þurfa að dveljast á hjúkrunarheimili
- Gerum átak í að hvetja og styðja eldri íbúa til þátttöku í félagsstarfi til að rjúfa eða koma í veg fyrir einangrun
- Gerum ráð fyrir byggingu íbúða fyrir eldri íbúa í skipulagi sveitarfélagsins í nágrenni við þjónustu
- Styrkjum enn frekar samstarf sveitarfélagsins og HSS í þjónustu við eldri íbúa
- Aukum samráð bæjarins við öldungaráð