Kosningar 2022

Kosningaskrifstofa Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ er að Hafnargötu 64, 230 Reykjanesbæ.

Kosningastjóri framboðsins er Hermann Nökkvi Gunnarsson, hann er í síma 776-1410.


 

Utankjörfundaratkvæði

Við minnum á utankjörstaðaratkvæðagreiðsluna, en hún fer fram hjá Sýslumanninum á Suðurnesjum að Vatnsnesvegi 33, 230 Reykjanesbæ, opið alla virka daga frá 08:30 til 15:00.

Atkvæðagreiðsla á sjúkrahúsum og hjúkrunar- og dvalarheimilum aldraðra fer fram skv. nánari auglýsingu á viðkomandi stofnun.

Ef þú eða einhver sem þú þekkir verða að heiman á kjördag (14. maí), látið okkur endilega vita í síma 776-1410.

Varðandi utankjörstaðaatkvæðagreiðslu þá viljum við koma eftirfarandi upplýsingum á framfæri vegna kosningar í heimahúsi. Kjósandi, sem ekki getur sótt kjörfund á kjördegi vegna sjúkdóms, fötlunar eða barnsburðar, er heimilt að greiða atkvæði í heimahúsi nema hann eigi kost á að greiða atkvæði á stofnun. Ósk um að greiða atkvæði í heimahúsi skal vera skrifleg og studd vottorði lögráða manns um hagi kjósandans og hafa borist kjörstjóra eigi síðar en kl. 10:00 fimmtudaginn 12. maí nk.

Umsókn um atkvæðagreiðslu í heimahúsi er hægt að ná í á meðfylgjandi slóð.