Í dag hélt Félag eldri sjálfstæðismanna á Suðurnesjum vel sóttan súpufund með Guðlaugi Þór Þórðarsyni. Með honum var botninn sleginn í dagskrá febrúarmánaðar.
Fyrr í mánuðinum stóð Heimir, félag ungra sjálfstæðismanna, fyrir öflugum fundi með Guðrúnu Hafsteinsdóttur og Margréti Sanders. Þar fékk ungt fólk tækifæri til að ræða þau mál sem á þeim brenna við fulltrúa okkar í bæjarstjórn og á þingi.
Í mars verður nóg um að vera. Utan reglulegra Laugardagsfunda, 11. og 25. mars, verður Félag eldri sjálfstæðismanna með opinn fund um lífeyrismál í Grófinni í hádeginu 7. mars og aðalfundur fulltrúaráðs verður haldinn 24. mars. Jafnframt verður fyrsti mánaðarlegi opni fundurinn með bæjarfulltrúum flokksins haldinn 29. mars.
Meira um það síðar.