Reykjanesbær getur orðið leiðandi sveitarfélag þegar kemur að sjálfbærni og umhverfisvænum lausnum. Við viljum stuðla að Í Reykjanesbæ eiga íbúar að búa við félagslegt öryggi og góð uppeldisskilyrði barna og ungmenna. Við leggjum áherslu á forvarnir og eflingu einstaklinga til framtíðar. Góð andleg og líkamleg heilsa, tækifæri til virkni, þroska og lífsgleði skiptir sköpum fyrir okkur öll. Þjónustuna á að skipuleggja og veita í góðu samstarfi við þá sem hana þiggja og aðra sem veita þjónustu á sviði velferðarmála. Þá á sveitarfélagið að vera í forystu hvað varðar rafrænt aðgengi að þjónustunni og setja skýr markmið um árangur.
Við boðum breytingar í velferðarþjónustu
- Aukum áherslu á úrræði sem auka getu til sjálfsbjargar og lífsgæði til frambúðar
- Styðjum vel við fólk sem þarfnast aðstoðar með það að markmiði að gera þörfina minni
- Gerum þjónustuna skilvirkari og auðveldum fólki þátttöku og/eða endurkomu á vinnumarkaðinn í samstarfi við fagaðila.
- Eflum búsetu úrræði fyrir börn og fullorðna með sérþarfir
- Styðjum við og eflum starfsfólk í velferðarþjónustu
- Tryggjum að þjónustustig sé í samræmi við uppbyggingu og stækkun bæjarins ásamt fólksfjölgun.
Við boðum breytingar í geðheilbrigðismálum
- Setjum geðheilbrigðismál á oddinn og gerum þau sýnileg
- Aukum til muna aðgengi að geðheilbrigðisþjónustu í grunn- og framhaldsskólum Reykjanesbæjar.
- Förum í sérstakt átak í geðrækt á unglingastigi grunnskóla.
- Styttum biðtíma fyrir greiningar á börnum og unglingum.
- Bjóðum upp á fjölbreyttari úrræði í skólum. Nýtum stefnuna um að fé fylgi barni. Það þýðir að börn og unglingar hafi val þegar kemur að geðrækt. T.d.
- Sjálfstyrkingarnámskeið
- Sálfræðiþjónusta
- Annað stuðningskerfi
- Setjum upp fjölbreytt úrræði í geðheilbrigðisþjónustu þar sem ein lausn hentar ekki öllum
- Aukum forvarnarstarf, fræðslustarf um geðheilsu og nýtum betur þekkingu fagfólks hér á svæðinu
- Hugum vel að fólki af erlendum uppruna og að aðgengi og sýnileiki geðheilbrigðisþjónustunnar sé á fleiri en einu tungumáli.
- Innleiðum rafræna sérfræðiþjónustu, lækna og sálfræðinga til viðbótar við staðbundna
- Styttum biðtíma eftir sálfræðiþjónustu
- Leggjum áherslu á samkennd, jákvæð og uppbyggileg samskipti í samfélaginu
Við boðum breytingar í forvarnarstarfi og stuðningi við fjölskyldur
- Hefjum stórsókn í forvarnarstarfi. Reykjanesbær verður leiðandi þegar kemur að forvarnarstarfi foreldra, barna- og unglinga. Forvarnarstarf er mikilvægt í öllum aldurshópum og til þess þarf að horfa í öllu starfi Reykjanesbæjar.
- Vinnum náið með hinum ýmsu félaga- og hjálparsamtökum m.a. ;
- Píeta
- Kvennaathvarfið
- Bjarkarhlíð
- Samtökin 78
- Bjóðum upp á fjölbreyttari fræðslu og úrræði fyrir börn með sérþarfir innan skólakerfisins
- Aukum við stuðning foreldra barna- og unglinga sem eiga erfitt uppdráttar í skólakerfinu og hugum að líðan þeirra
- Styðjum fólk til árangurs á vinnumarkaði – sérstaklega fólk með sérþarfir.