Umhverfis-, skipulags- og samgöngumál

Skipulagsmál sveitarfélaga þarf að hugsa til langs tíma og í heildarsamhengi við þróun í nágrenni þeirra. Gæta þarf að eðlilegri endurnýjun og uppbyggingu svæða, aukinni eða breyttri þörf fyrir íbúabyggð og tilfærslu atvinnusvæða eftir því sem bærinn stækkar. Þétting byggðar eflir innviði og bætir ásýnd bæjarins þannig að hann verði eftirsóttur til búsetu og atvinnuuppbyggingar. Umhverfi íbúa Reykjanesbæjar á að vera aðlaðandi, vistvænt og heilnæmt. Huga þarf að heildarmyndinni í ört vaxandi sveitarfélagi og tryggja að skipulag umferðar og atvinnuuppbyggingar taki mið af nálægð við íbúabyggð. Fallegt umhverfi og útivistarmöguleikar spila stórt hlutverk í því að laða til sveitarfélagsins öflugt fólk og fyrirtæki.

Við boðum breytingar í umhverfis- og skipulagsmálum

  • Samþykkjum ekki öryggisvistun innan eða við íbúabyggð
  • Tryggjum nægt lóðaframboð
  • Verum öflugir talsmenn þess að Suðurnesjalína 2 rísi og tryggjum þannig raforkuöryggi á svæðinu og nægt framboð rafmagns til atvinnuuppbyggingar 
  • Tryggjum að samhliða uppbyggingu nýrra hverfa fylgi uppbygging innviða
  • Reykjanesbær er órjúfanlegur hluti af flugvallarborginni sem er nú í þróun af erlendum skipulagsaðilum og brýnt er að skipulagsyfirvöld bæjarins sýni frumkvæði og séu í nánu samstarfi við þá aðila 

Við boðum breytingar á stjórnun í umhverfis- og skipulagsmálum

  • Ráðumst í viðhald fasteigna Reykjanesbæjar til að fyrirbyggja kostnaðarsamar framkvæmdir
  • Eflum umhverfis-og skipulagssvið sveitarfélagsins
  • Kynnum aðalskipulag, deiliskipulag og breytingar á skipulagi vel, á skiljanlegan og myndrænan hátt
  • Stýrum af festu verklegum framkvæmdum og leggjum áherslu á góðan undirbúning áður en hafist er handa
  • Verum leiðbeinandi fyrir fólk og fyrirtæki í skipulagsmálum þannig að komist verði hjá ágreiningi  
  • Endurskoðum reglur um lóðaúthlutun

Við boðum breytingar á vegakerfinu

  • Sjáum til þess að Reykjanesbær stjórni ferðinni við hönnun og skipulag tvöföldunar Reykjanesbrautar frá Fitjum til flugstöðvar
  • Tryggjum samgöngur sem leiða ferðamenn inn í bæinn
  • Endurskoðum umferðarskipulag innan sveitarfélagsins með tilliti til aukinnar umferðar og strætóferða 

Við boðum breytingar á áherslum strætó 

  • Frítt í strætó á skólatíma fyrir nemendur
  • Aukum tíðni strætóferða
  • Komum á meiri samvinnu rekstraraðila strætó við skóla-, íþrótta- og tómstundastarf 
  • Skipuleggjum betur frístundaakstur og strætisvagnaferðir með þarfir skóla-, íþrótta- og tómstundastarfs í huga
  • Tengjum strætókerfið við Leifsstöð/Keflavíkurflugvöll
  • Byggjum upp strætókerfi með þarfir notenda í huga

Við boðum breytingar tengdar umhverfinu

  • Þróum þjónustukjarna í hverfum bæjarins, sérstaklega í Innri Njarðvík, á Ásbrú, við Aðaltorg og við Fitjar
  • Setjum upp fjölskyldugarð/útisvæði fyrir fólk á öllum aldri í Innri- Njarðvík
  • Gerum fjölskylduvænt og aðlaðandi útivistarsvæði á Ásbrú
  • Fegrum allar innkomur bæjarins og gerum þær meira aðlaðandi 
  • Eflum og fegrum Hafnargötuna 
  • Þróum svæðið í kringum Krossmóa og skoðum möguleika á blöndu af þjónustu og íbúðum 
  • Vinnum með félagasamtökum að frekari uppbyggingu Njarðvíkurskóga sem útivistarparadísar
  • Vinnum áfram að uppbyggingu og fegrun útivistarsvæðis í Vatnsholti
  • Hugum vel að staðsetningu iðnaðarsvæða í skipulagi og skoðum óhikað breytingar á eldri iðnaðarsvæðum sem orðin eru samofin íbúabyggð
  • Leggjum rækt við og hlúum vel að skrúðgörðum bæjarins
  • Setjum metnað í fallegt umhverfi með skýrum kröfum um umgengi og umhirðu innan sveitarfélagsins