Menningarmál

Reykjanesbær hefur stækkað ört og íbúum fjölgað til muna. Mikilvægt er að hlúa að mannlífinu og þeim þáttum sem setja mark sitt á bæinn. Öflug menningarstarfsemi, þar sem fólki gefst tækifæri til að sjá og hitta aðra og upplifa menningarviðburði saman, eflir bæjarbrag og laðar að íbúa og gesti.

Við boðum breytingar í menningarmálum

  • Eflum menningartengda viðburði s.s. viðburði tengda aðventugarði, barnamenningarhátíð og 17.júní
  • Eflum bókasöfnin sem menningar- og upplýsingamiðstöðvar, finnum lausn á húsnæðisvanda og styðjum við nútímavæðingu þeirra
  • Opnum aftur og eflum Landnámsdýragarðinn 
  • Eflum styrkveitingar til menningarmála og endurskoðum úthlutun
  • Veitum börnum og ungmennum tækifæri til aukinnar þátttöku í menningartengdum verkefnum
  • Vekjum meiri athygli á sögu og menningu bæjarins fyrir íbúa og gesti bæjarins s.s. með stafrænum lausnum og reykjanesbæjar snjallforriti
  • Bætum í markaðssetningu á menningartengdum verkefnum Reykjanesbæjar og aukum aðsókn gesta
  • Aukum samtal skipuleggjenda menningarviðburða og þjónustuaðila í bænum 
  • Þróum öflugri miðbæjarmenningu í samstarfi við íbúa og aðra hagaðila