Íþróttir

Reykjanesbær hefur dregist aftur úr sambærilegum sveitarfélögum hvað varðar framlög til íþróttamála. Auka þarf samstarf við íþróttafélögin og setja skýr markmið um árangur og áherslur. Við viljum að bærinn standi undir nafni sem íþróttabær og að öflugt íþróttastarf standi öllum íbúum til boða, á öllum aldri, enda nátengt öðrum markmiðum um velferð íbúa.

Við boðum breytingar í íþróttamálum

  • Aukum framlög til íþróttafélaga og verum samanburðarhæf við sambærileg sveitarfélög
  • Bjóðum fría lóð og ívilnanir fyrir uppbyggingu þjóðarleikvangs í Reykjanesbæ
  • Tengjum saman frístundastarf skólanna og íþróttahreyfingarinnar 
  • Setjum fram skýra forgangsröðun um uppbyggingu íþróttamannvirkja og tímasettan aðgerðalista í samstarfi við íþróttahreyfinguna
  • Skipuleggjum betur frístundaakstur og strætisvagnaferðir með þarfir skóla-, íþrótta- og tómstundastarfs í huga
  • Sjáum til þess að bæjarfélagið og íþróttahreyfingin vinni saman við að stórefla íþróttir í bæjarfélaginu og standa þannig undir nafninu “íþróttabær”
  • Tryggjum reglubundið samráð við íþróttafélögin og meiri samvinnu
  • Tryggjum fleiri stöðugildi til íþróttafélaganna