Lykilstoðin að velferð í farsælu bæjarfélagi er gott framboð af fjölbreyttum og vel launuðum störfum við allra hæfi. Áherslur í atvinnumálum eiga að taka mið af þeim tækifærum sem leynast í nærumhverfinu og þeirri tækniþróun sem er að eiga sér stað. Árangursrík atvinnuþróun styður við markmið í öðrum málaflokkum þannig að starfsfólk fyrirtækja kjósi að búa hér og vera hluti af öflugu samfélagi.
Við boðum breytingar í samskiptum og stuðningi við þau fyrirtæki sem eru á svæðinu og við sköpun nýrra atvinnutækifæra
- Lækkum fasteignaskatta á fyrirtæki
- Gerum búsetu í Reykjanesbæ aðlaðandi kost fyrir starfsfólk sem starfar á Suðurnesjum en býr annars staðar
- Ljúkum framkvæmdum við Helguvíkurhöfn í samvinnu við ríkið þannig að hún komist í fulla virkni
- Mótum skýra framtíðarsýn á staðsetningu og uppbyggingu atvinnusvæða
- Eigum frumkvæði að því að bjóða fjölbreyttum og öflugum fyrirtækjum að flytja starfsemi sína til bæjarins, t.d. með góðri þjónustu og ívilnunum
- Vinnum vel með þeim fyrirtækjum sem eru með starfsemi, og þeim sem hafa hug á að hefja starfsemi í Reykjanesbæ
- Markaðssetning Reykjanesbæjar verði skipulögð í samstarfi við atvinnulífið
- Setjum á laggirnar nýsköpunarmiðstöð í samstarfi við einkaaðila
- Tökum virkan þátt í samstarfi aðila að verkefninu Suðurnesjavettvangi og eigum frumkvæði að samstarfi um græna iðngarða innan sveitarfélagsins
- Löðum að fyrirtæki og einstaklinga til bæjarins sem bjóða upp á störf án staðsetningar
- Verum öflugir talsmenn þess að Suðurnesjalína 2 rísi og tryggjum þannig raforkuöryggi á svæðinu, og nægt framboð rafmagns til atvinnuuppbyggingar
Með góðri stjórnun, frumkvæði og öflugu samstarfi mun eftirfarandi gerast:
- Laxeldi á landi byggist upp í Auðlindagarðinum við Reykjanesvirkjun
- Skipafloti Landhelgisgæslunnar flytur til Reykjanesbæjar, Njarðvíkurhöfn
- Flugborg mun rísa við Flugstöð Leifs Eiríkssonar
- Höfuðstöðvar ISAVIA fara til Suðurnesja
- Skipasmíðastöð við Njarðvíkurhöfn nútímavæðist og verður sú öflugasta á landinu
- Höfuðstöðvar leitar og björgunar á Norðurslóðum verða við Helguvíkurhöfn
- Frumkvöðlasetur rís í Helguvík
- Aukin matvælaframleiðsla verður á Reykjanesi
- Ferðaþjónustan eflist með enn öflugri afþreyingu, útivist, fjölbreyttum gistimöguleikum, góðum veitingastöðum, bílaleigum, öflugri verslun og þjónustu svo eitthvað sé nefnt