Ásbrú

Í október 2022 eru 16 ár frá stofnun Þróunarfélags Keflavíkurflugvallar, Kadeco. Síðustu eignirnar voru seldar árið 2019 og búa nú um 4.000 íbúar í hverfinu. Gert er ráð fyrir allt að 15.000 manna byggð á Ásbrú. 

Ásbrú er það hverfi Reykjanesbæjar sem hvað minnst hefur verið sinnt hvað varðar umhverfið og aðstöðu fyrir íbúa. Þessu viljum við breyta og það verulega til að íbúar hverfisins njóti sambærilegrar þjónustu og íbúar annarra hverfa.

Við boðum breytingar á Ásbrú

  • Verndum sögulegt gildi Ásbrúar
  • Hefjum strax undirbúning að byggingu nýs grunnskóla á Ásbrú 
  • Eflum félagsmiðstöð á Ásbrú, í tengslum við grunnskólann og í samvinnu við Fjörheima
  • Gerum fjölskylduvænt útisvæði á Ásbrú
  • Vinnum að því að tengja Ásbrú betur við Reykjanesbæ með því að setja Reykjanesbrautina í stokk frá Fitjum og upp að Grænási
  • Skipuleggjum góðar gönguleiðir um Ásbrú sem eru tengdar við strandleiðina með minnisvörðum og góðri lýsingu
  • Skipuleggjum frístundaakstur og strætisvagnaferðir með þarfir skóla-, íþrótta- og tómstundastarfs í huga
  • Bætum samgöngur á milli Ásbrúar og annarra hverfa, fyrir akandi, hjólandi og gangandi 
  • Hugum að umhverfinu á Ásbrú, ástandi gatna, gangstétta og fegrun opinna svæða
  • Leggjum grunn að aukinni þjónustu á svæðinu
  • Hefjum framkvæmdir við þéttingu byggðar og tryggjum fjölbreytta íbúðakosti 
  • Semjum við ríkið um lóðaleigu á Ásbrú